Visit Reykjanesbær

Ari Eldjárn – Áramótaskop í Hljómahöll

Registrations have closed.
Ari Eldjárn – Áramótaskop í Hljómahöll

Ari Eldjárn – Áramótaskop í Hljómahöll

520 520 people viewed this event.

Ari Eldjárn kveður árið 2022 með ógleymanlegri uppistandssýningu sinni Áramótaskop!
Ari er einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu sína framleidda af bandarísku streymisveitunni Netflix en sýningu hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna áhorfenda og vakti mikla athygli. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.
Þetta er í sjötta sinn sem þessi geysivinsæla sýning Ara er sett á svið en síðast seldust allar sýningar upp. Um 20.000 manns mættu á sýningar víðsvegar um landið til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti í bland við annað efni.
Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!

Tvær sýningar fara fram í Hljómahöll þann 15. desember. Sú fyrri hefst kl. 19:00 og sú síðari kl. 22:00. Miðasala hefst kl. 10:00 miðvikudaginn 21. september á tix.is!

Auka upplýsingar

 

Dagsetning og tími

15-12-2022 @ 19:00 to
15-12-2022
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deila