Bíókvöld Kvennakórs Suðurnesja – tónleikar
69 69 people viewed this event.
Kórinn flytur tónlist úr þekktum kvikmyndum á vortónleikum sínum þetta árið. Dagskráin er fjölbreytt og inniheldur gleði, hlátur og grátur eins og gerist í góðum bíómyndum.
Kórkonur hafa notið þess að æfa þetta skemmtilega prógramm í vetur og eru spenntar að deila því með tónleikagestum.
Stjórnandi er Dagný Þ. Jónsdóttir
Hljómsveitina skipa:
Geirþrúður F. Bogadóttir, píanó
Sigurður B. Ólafsson, gítar
Jón Árni Benediktsson, bassi
Magnús Newman, trommur.
Miðaverð er 4000 kr.
Miðaverð í forsölu er 3500 kr.
Hægt er að panta miða í forsölu á facebooksíðu kórsins, hjá kórkonum eða með því að skanna QR kóða á auglýsingu. Einnig verður miðasala við innganginn.
Verið velkomin að koma og eiga skemmtilegt vorkvöld með kórnum.