Visit Reykjanesbær

Bókakvöld Bókasafns Reykjanesbæjar

Bókakvöld Bókasafns Reykjanesbæjar

Bókakvöld Bókasafns Reykjanesbæjar

52 52 people viewed this event.

Djassbandið Þríó mun opna kvöldið með nokkrum ferskum og persónulegum djasshljómum. Bandið skipar Jón Böðvarsson á saxafón, Ástþór Sindri Baldursson á bassa og Sigurður Baldvin Ólafsson á gítar.

Eliza Reid gefur okkur innsýn í lífið á bak við tjöldin sem forsetafrú í bók sinni The First Lady Next Door. Eliza er þekkt fyrir að skrifa um „sprakka“ – íslenskar afrekskonur – og nú fáum við að heyra hennar eigin sögu.

Emil Hjörvar tekur okkur í dularfullt ferðalag í fantasíunni Eilífðarvetur. Þar ríkir vægðarlaus kuldi, mannskæðir frostbyljir bresta á daglega og enginn kemst burt.

Hildur Knútsdóttir mun svo fá hárin til að rísa með frásögn af glænýrri hrollvekju fyrir fullorðna – Irpu.

Höfundarnir munu segja frá sköpunarferlinu og spjalla við gesti að loknum upplestri.

Öll velkomin og ókeypis aðgangur.

Viðburðirnir ,,Kynning á bókmentaarfinum“ eru samstarfsverkefni almenningsbókasafna Suðurnesja sem styrktir eru af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn/vidburdir/vidburdir/bokakvold-bokasafns-reykjanesbaejar →

 

Dagsetning og tími

10-03-2026 @ 08:00 e.h. til
10-03-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum