Bubbi – Þorláksmessutónleikar
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta verður í 40. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum.
Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 39 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
Þorláksmessutónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum:
5. desember – Hotel Selfoss
7. desember – Hljómahöll Reykjanesbæ
11. desember – Lindakirkja Kópavogi
13. desember – Hof Akureyri
19. desember – Bíóhöllin Akranesi
23. desember – Eldborg Reykjavík