Dóri DNA: Engar takmarkanir
44 44 people viewed this event.
Dóri DNA mætir í Hljómahöll með glænýja uppistandssýningu sem hefur slegið rækilega í gegn.
Eftir einn kaldasta vetur í manna minnum, hryðjuverkaógn og árásir nettrölla og dróna, er hann mættur aftur. Maðurinn sem sumir hafa kallað mannlega rjómasprautu, Sylvester Stallone mjúka mannsins, tunglskinselskhuginn Dóri DNA.
Nú mun hann kanna hvort það sé rétt sem þeir segja – að nú hreinlega megi ekkert lengur.
Komið og gleðjist með, eða takið þátt í krossabrennunni.
Húsið opnar kl. 19:00 og sýningin hefst kl. 20:00.
Miðasala hefst miðvikudaginn 1. mars kl. 11:00.