Galdrar á bókasafninu
258 258 people viewed this event.
Fimmtudaginn 31. júlí höldum við upp á afmæli Harry Potters, en kappinn verður 46 ára!
Við hvetjum alla galdramenn, nornir og mugga á öllum aldri til að kíkja við og fagna deginum með okkur. Komdu og taktu þátt í skemmtilegum þrautum þar sem reynir á galdramáttinn.
Klæðist endilega ykkar fínustu galdraskikkjum, setjið upp gleraugun eða mætið í litum ykkar Hogwarts-heimavistar. Við lofum töfrandi stemningu, skemmtilegum uppákomum og fullt af bókum sem fljúga (næstum því) úr hillunum! 🪄✨