Visit Reykjanesbær

GÓSS á trúnó

GÓSS á trúnó

GÓSS á trúnó

13 13 people viewed this event.

Tríóið Góss er skipað bræðrunum Sigurði og Guðmundi Óskari Guðmundssonum og Sigríði Thorlacius vinkonu þeirra.  Hljómsveitin var stofnuð árið 2017 gagngert til þess að meðlimir gætu pakkað í bíl og komist út fyrir borgina, til þess að flakka um sveitirnar og spila músík og hitta fólk. Þau hafa undanfarin ár rúntað spilandi og syngjandi þvers og kruss um landið, réttsælis sem og rangsælis. Eina plötu eiga þau í sínum fórum, plötuna Góssentíð, sem kom út 2019 og hlaut mikið lof. Prógramið eru lög héðan og þaðan – frumsamin lög og tökulög, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög. Allt í bland og öllu skellt í einhverskonar þríraddaðan sveitabúning.

Tónleikaröðin „trúnó” hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin er að tjalda öllu til og bjóða upp á stórtónleika en halda þá í Bergi í Hljómahöll sem tekur aðeins um 100 gesti. Listamenn sem vanir eru að spila fyrir talsvert stærri hóp áhorfenda stíga þar á svið í nálægð við færri gesti en vanalega.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/goss-a-truno →

 

Dagsetning og tími

28-05-2026 @ 08:00 e.h. til
29-05-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum