Gripir og grafísk hönnun
158 158 people viewed this event.
Arnar Fells Gunnarsson leiðir gesti um sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar, Eins manns rusl er annars gull, og fjallar um hana út frá sjónarhorni grafískrar hönnunar. Gripirnir sem eru til sýnir bera margir hverjir vörumerki fyrirtækja og gefur hönnun þeirra innsýn í tíðaranda og áherslur liðinnar tíðar. Inn í frásögnina fléttast einnig minningar frá æskuárum Arnars í Keflavík.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum.
Verið öll velkomin! Þátttaka er ókeypis.