Grjóthleðslunámskeið – Kristín Kelddal
Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.
Hvert námskeið verður frá föstudegi til sunnu-dags frá klukkan 9:00–15:00. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.
Í kennslu sinni leggur Kristín Auður ríka áherslu á nákvæm vinnubrögð, skilning á uppbyggingu hleðslna og þá verkþekkingu sem hefur þróast í íslensku samfélagi í gegnum aldir. Námskeið hennar byggja á verklegri kennslu þar sem þátttakendur læra að lesa í grjót, landslag og sögulegt samhengi mannvirkja, og beita þeir¬ri þekkingu við endurreisn og viðhald hlaðinna veggja og tófta.
Kristín Auður Kelddal er hleðslusérfræðingur og skrúðgarðyrkjumeistari með víðtæka reynslu af endurhleðslu og varðveislu grjót-hleðslumannvirkja víðs vegar um landið. Hún vinnur markvisst með hefðbundnar íslenskar hleðsluaðferðir þar sem efnisval, burðarvirki og samhengi við landslagið eru í forgrunni.
Með þátttöku Kristínar Auðar í Fornverki í Höfnum er tryggt að endurhlaðin mannvirki séu unnin í samræmi við fagleg og söguleg viðmið og að verkkunnátta í íslenskri grjóthleðslu sé miðluð áfram á vandaðan og ábyrgðan hátt.
Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og þeirri hleðslu sem tókst að endurreisa.