Grjóthleðslunámskeið – Masterclass með Dan Snow
Dan Snow Stoneworks er alþjóðlega viðurkenndur listamaður og hleðslusérfræðingur sem vinnur á mörkum handverks, listsköpunar og landslags. Verk hans byggja á djúpum skilningi á steini sem efni, rými og formi og einkennast af norrænni næmni, virðingu fyrir náttúrulegu samhengi og samtali við landslagið.
Í Masterclass námskeiðum sínum leggur Dan Snow áherslu á skapandi nálgun, þar sem hefðbundin verkkunnátta er nýtt sem grunnur að sjálfstæðri listsköpun úr náttúrugrjóti. Námskeiðin snúast ekki um endurreisn menningarminja heldur um listsköpun, tilraunir með efni og form og þróun persónulegrar tjáningar í beinu sambandi við náttúrulegt um¬hverfi.
Með þátttöku Dan Snow er tenging Fornverks í Höfnum við alþjóðlegt fagumhverfi styrkt og opnað fyrir nýja sýn á hvernig fornt handverk getur orðið lifandi vettvangur samtímalistar.
Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og því listaverki sem tókst að skapa
Hvert námskeið verður frá föstudegi til sunnu-dags frá klukkan 9:00–15:00. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.