Visit Reykjanesbær

Grýbos

Grýbos

Grýbos

13 13 people viewed this event.

Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst sem tilraunir í upptökuveri þar sem var prófað allt frá A til Ö, það þróaðist fljótt í hljómsveit með kraftmiklum hljóðheim. Með þeim í lið slógust Hlynur Sævarsson á bassa og Magnús Már Newman á trommur. Tónlistin einkennist af stórum og kraftmiklum köflum sem flæða áreynslulaust yfir í mildari ‘’atmó’’ kafla.

Fyrsta plata sveitarinnar kemur út í haust og eru nokkrir sínglar væntanlegir á næstu misserum. Grýbos stíga á svið í heimabæ sínum í Hljómahöll þann 22. apríl með liðsauka með sér innanhandar.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/grybos-2026 →

 

Dagsetning og tími

22-04-2026 @ 08:00 e.h. til
22-04-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum