Visit Reykjanesbær

Hátíðaronun: Gjöf Aðalsteins Ingólfssonar

Hátíðaronun: Gjöf Aðalsteins Ingólfssonar

Hátíðaronun: Gjöf Aðalsteins Ingólfssonar

607 607 people viewed this event.

Verið hjartanlega velkomin á opnun Skráningarsýninga úr gjöf Aðalsteins Ingólfssonar í Listasafni Reykjanesbæjar.
Í sumar gefst gestum einstakt tækifæri til að kynnast verkum úr veglegri gjöf Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings til safnsins. Gjöfin telur um 140 verk og markar mikilvægan áfanga í sögu Listasafns Reykjanesbæjar.
Sýningarnar veita innsýn í fjölbreytt verk og varpa jafnframt ljósi á það hvernig safneign verður til, þar sem verkin eru rannsökuð, skráð og gerð aðgengileg sem hluti af vaxandi safnkosti safnsins.
Jafnframt er sýningarröðin þakklætisvottur til Aðalsteins fyrir ómetanlegt framlag hans til Listasafns Reykjanesbæjar í nær tvo áratugi.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á þjóðhátíðardaginn með kaffi og kleinum, 17. júní, kl. 14:00–16:00.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://fb.me/e/aJW9aqfsw →

 

Dagsetning og tími

17-06-2026 @ 02:00 e.h. til
17-06-2026 @ 04:00 e.h.
 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum