Visit Reykjanesbær

Hvernig styðjum við best við þroska barna í gegnum leik, tengsl og daglegt líf?

Hvernig styðjum við best við þroska barna í gegnum leik, tengsl og daglegt líf?

Hvernig styðjum við best við þroska barna í gegnum leik, tengsl og daglegt líf?

53 53 people viewed this event.

Í þessari hlýlegu og hagnýtu fræðslu skoðum við:
💛 Hvers vegna leikur er lykill að námi og þroska
💛 Hvernig börn læra og þroskast í gegnum dagleg samskipti
💛 Hlutverk foreldra í að styðja við sjálfstæði, tilfinningar og félagsfærni
💛 Einfaldar leiðir sem nýtast strax heima

Fræðslan hentar foreldrum barna á öllum aldri og byggir á reynslu, þekkingu og raunverulegum dæmum úr daglegu lífi.
⏰ Lengd: um 60 mínútur
👩‍🏫 Fyrirlesari:
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir
Ráðgjafarþroskaþjálfi hjá menntasviði Reykjanesbæjar
Katrín hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum, meðal annars í leik- og grunnskólum, félagsstarfi og ráðgjöf.
Hún er einnig skyndihjálparkennari og leiðbeinandi í sálrænni skyndihjálp og öryggi og björgun.

✨ Markmið fræðslunnar er að styrkja foreldra í einu mikilvægasta hlutverki lífsins – að styðja barnið sitt með hlýju, nærveru og skilningi.

Velkomin á fræðslu sem gefur bæði innsýn og innblástur 💛

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://fb.me/e/5HqEHx85y →

 

Dagsetning og tími

30-04-2026 @ 11:00 f.h. til
30-04-2026 @ 12:00 e.h.
 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum