Visit Reykjanesbær

Jólatónleikar Kórs Njarðvíkurkirkju – Heyrið óma hátt um jörð

Jólatónleikar Kórs Njarðvíkurkirkju – Heyrið óma hátt um jörð

Jólatónleikar Kórs Njarðvíkurkirkju – Heyrið óma hátt um jörð

192 192 people viewed this event.

Jólatónleikar Kórs Njarðvíkurkirkju – Heyrið óma hátt um jörð

Meira en bara jólatónleikar!

Kór Njarðvíkurkirkju ætlar að gera sér glaðan dag í Hljómahöll þann 9. desember og bjóða upp á sannkallaða jólatónlistarveislu þar sem öllu verður tjaldað til!

Rúmlega fimmtíu söngvarar, fimm manna hljómsveit, fjögurra manna strengjakvartett og tuttugu einsöngvarar úr röðum kórfélaga munu fylla sviðið í Stapa og flytja fjölbreytta jólatónlist undir stjórn Rafns Hlíðkvists. Á dagskránni verða fallegar jólaperlur, kraftmiklar útsetningar og auðvitað nóg af þeirri gleði og orku sem einkennir Kór Njarðvíkurkirkju.

Í ár syngjum við líka fyrir hjartans mál

Allur ágóði tónleikanna rennur til kaupa á nýju brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Málefnið stendur kórnum sérstaklega nærri eftir að ein úr hópnum hefur tekist á við brjóstakrabbamein á árinu.

Kórinn hefur heitið einni milljón króna til söfnunarinnar, sem Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa fyrir, og ætlar að leggja allt í sölurnar til að standa við það loforð.

Við vonum að þið takið þátt í þessari einstöku kvöldstund með okkur, njótið tónlistarinnar og hjálpið okkur um leið að tryggja að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð.

Við ætlum að þenja brjóstin, fylla Hljómahöll af söng og láta óma hátt um jörð að konur á Suðurnesjum eigi að geta sótt brjóstaskimun í heimabyggð!

Flytjendur

Kór Njarðvíkurkirkju og einsöngvarar úr röðum kórfélaga

Tónlistarstjóri: Rafn Hlíðkvist

Gítar: Þorvarður Ólafsson

Bassi: Jón Árni Benediktsson

Trommur: Þorvaldur Halldórsson

Ásláttur: Magnús Már Newman

Meðlimir úr strengjasveitinni Spiccato:

Martin Frewer og Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir, fiðlur

Þórunn Harðardóttir, víóla

Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir, selló

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman ógleymanlega jólastund!

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/53/jolatonleikar-kors-njardvikurkirkju →

 

Dagsetning og tími

09-12-2026 @ 08:00 e.h. til
09-12-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum