Lausnin við matarsóun
29 29 people viewed this event.
Ertu þreytt(ur) á að horfa upp á peningana þína rotna í grænmetisskúffunni? Hvað getum við gert til að minnka matarsóun (og spara pening)?
Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food á Íslandi og matreiðslumeistari, leiðir okkur í sannleikann um hvað felst í matarsóun, hvernig hún birtist og áhrif hennar á umhverfið og samfélagið.
Dóra gefur skotheld, einföld og bragðgóð ráð í eldhúsinu til að nýta matarafganga og leyfir gestum að smakka á ýmsu góðgæti sem hefur verið á leið í ruslið.
Praktísk erindi sem gefa þér hugmyndir og tól til að taka með heim og byrja strax að vinna með heima í eldhúsinu.
Umhverfið og veskið þitt munu þakka þér sérstaklega vel í náinni framtíð