Listahátíð barna og ungmenna
Listahátíð barna og ungmenna í Reykjanesbæ verður haldin í Duus Safnahúsum 30. apríl – 10. maí 2026.
Formleg opnun með leikskólabörnum verður haldin 30. apríl og opið verður fyrir almenning kl 12:00.
Listahátíðin er hluti af BAUN, barna- og ungmennahátíð og er afrakstur fjölbreytts listastarfs nemenda úr öllum leikskólum Reykjanesbæjar og af listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Í ár er yfirskrift sýningarinnar hjá leikskólabörnum Náttúran á Reykjanesi og er sýningin í Listasal. Í sýningu leikskólanna fáum við að sjá brot af því besta úr verk- og listgreinastarfi vetrarins.
Á sýningu Fjölbrautaskólans fáum við að sjá vel valin verk eftir útskriftarnemendur af listnámsbraut í Bíósal.
Komið við og sjáið sköpunargleði barna og ungmenna í Reykjanesbæ.