Visit Reykjanesbær

Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla ásamt þremur englum og þreyttum hestum

Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla ásamt þremur englum og þreyttum hestum

Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla ásamt þremur englum og þreyttum hestum

90 90 people viewed this event.

Ljósanæturhelgistund með sr. Gumma Kalla verður í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 6. september kl. 20 undir yfirskriftinni – Vitin fimm og minningarnar.
Helgistundin er í umsjón sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar prests sem margir þekkja sem Gumma Kalla og með honum er hljómsveitin Þrír englar og þreyttir hestar.
Hljómsveitina skipa að þessu sinni Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Rós Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson.
Þrír englar og þreyttir hestar hafa getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan við ýmis tilefni undanfarin ár, meðal annars við Dylan-guðsþjónustu í Keflavíkurkirkju síðasta vor.
Guðmundur Karl er jafnframt með málverkasýningu í Kirkjulundi yfir Ljósanæturhelgina undir sömu yfirskrift – Vitin fimm og minningarnar.
Verið hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju til fallegrar stundar í lok Ljósanætur

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: http://www.keflavikurkirkja.is →

 

Dagsetning og tími

06-09-2026 @ 08:00 e.h. til
06-09-2026 @ 09:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum