Visit Reykjanesbær

Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra – The Grand Final Show

Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra – The Grand Final Show

Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra – The Grand Final Show

437 437 people viewed this event.

Kæru vinir.

Í haust verða fjögur ár liðin frá því að ég, Már, flaug úr hreiðrinu og hélt yfir hafið á vit ævintýranna. Nú er ég á lokaárinu við hinn frábæra tónlistarháskóla Royal Northern College of Music (RNCM) í Manchester. Af því tilefni tel ég í mína þriðju og síðustu tónleika á Íslandi ásamt RNCM Session Orchestra.

Á tónleikunum verður farið um víðan völl. Auk tónlistar eftir mig verða flutt vel valin lög sem hafa mótað mig í gegnum tíðina, í nýjum og glæsilegum sinfóníuútsetningum.

RNCM Session Orchestra skipa þrjátíu stórkostlegir ungir hljóðfæraleikarar. Þessir tónlistarmenn eru upprennandi stjörnur ensku sinfóníuelítunnar og koma reglulega fram með hljómsveitum á borð við BBC Philharmonic, The Hallé og Opera North í Manchester.

Það hefur verið mér ómetanlegur lærdómur og mikill heiður að starfa með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki undanfarin ár. Ég hlakka mikið til að bjóða hópinn velkominn í fallega heimabæinn okkar, Reykjanesbæ.

Verkefni af þessari stærð er gríðarlega umfangsmikið og stuðningur heimamanna og góðra styrktaraðila hefur verið ómetanlegur í þessari vegferð.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Hljómahöll og eiga með ykkur ógleymanlega kvöldstund.

Flytjendur: Már Gunnarsson og Ísold

Hljómsveitarstjóri: Prófessor Andy Stott

Hljóðfæraleikarar:

Fyrsta flauta: Jessica Pun

Önnur flauta/pikkoló: Adele Bracegirdle

Óbó: Elizabeth Russell

Altsaxófónn: Matthew Hodson

Tenór-/sópransaxófónn: Zack Smith

Barítónsaxófónn: Samuel Lightwing

Franskt horn: Thomas Hutchison og Joseph Clarkson

Trompet: Robbie Richardson og Alex Browne

Básúna: Oliver Bartlett

Píanó: Már Gunnarsson

Hljómborð: Aaron Le Maistre

Gítar: Guy Bandell

Bassi: Max Cooper

Slagverk: Sam Garbutt og Daniel Malone

Fyrsta fiðla: Lian Yip, Fionnghuala Drumgoole, Elanor Leydecker og Coraleigh Edwards

Önnur fiðla: Elana Gewirtz, Eleanor Prout, Ellie Shek og Emily Ampt

Víólur: Éadaoin Drumgoole og Nadia Eskandari

Selló: Lucy Pye og Stefan Rogers

Bakraddir: Matt Vining, Owen Edwards og Finn Flood

Samstarfsaðilar:

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport, Sporthúsið Reykjanesbæ, K. Steinarsson, Bus4u Iceland, Rétturinn, Hamborgarabúlla Tómasar, Kökulist Bakarí og Reykjanesbær.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/46/mar-gunnarsson-the-royal-northern-college-of-music-session-orcherstra →

 

Dagsetning og tími

27-11-2026 @ 08:00 e.h. til
27-11-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum