Myrkvastund í Reykjanesbæ
Þann 12. ágúst fáum við að upplifa einstakt augnablik í Reykjanesbæ þegar dagurinn dimmir um stund og almyrkvinn tekur yfir
Af því tilefni bjóðum við til Myrkvastundar, almyrkvaviðburðar á fjórum stöðum í bænum þar sem tónlist, fræðsla og fjölbreytt dagskrá skapa eftirminnilega upplifun fyrir alla aldurshópa. Þegar almyrkvinn nær hámarki mun náttúran sjálf taka sviðið og við fáum tækifæri til að verða saman vitni að einu magnaðasta sjónarspili hennar
Hér má sjá staðsetningar og dagskrá allra viðburðanna. Fjögur stór myrkvagleraugu marka staðina þar sem viðburðir fara fram. Við hvetjum fólk til að kynna sér staðsetningarnar og velja þann stað sem hentar best. Ef kostur er hvetjum við íbúa og gesti til að skilja bílinn eftir heima og ganga eða hjóla á viðburðinn.
Staðsetningar
• Við Kamb í Innri-Njarðvík (skoða á korti)
• Í Skrúðgarðinum í Ytri-Njarðvík (skoða á korti)
• Við ráðhúsið á Ásbrú (skoða á korti)
• Í Holtunum ofan við Holtaskóla (skoða á korti)
Við Kamb í Innri Njarðvík
• DJ Mellí
• Júlí Mjöll verður með Pop Up viðburð
• Íþróttafélögin sjá um veitingasölu og afþreyingu
• Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir íbúa og gesti í gegnum upplifunina með stuttum hljóðupptökum þar sem hann miðlar fróðleik og innsýn um almyrkvann.
Í Skrúðgarðinum í Ytri Njarðvík
• DJ Lexi
• Margrét Lilja verður með Pop Up viðburð
• Íþróttafélögin sjá um veitingasölu og afþreyingu
• Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir íbúa og gesti í gegnum upplifunina með stuttum hljóðupptökum þar sem hann miðlar fróðleik og innsýn um almyrkvann.
Í Holtunum ofan við Holtaskóla
• DJ Ragga Holm
• Marta Eiríks verður með Pop Up viðburð (tónlist og taktur)
• Íþróttafélögin sjá um veitingasölu og afþreyingu
• Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir íbúa og gesti í gegnum upplifunina með stuttum hljóðupptökum þar sem hann miðlar fróðleik og innsýn um almyrkvann.
Við Ráðhúsið á Ásbrú
• DJ Sóley
• Sara Dögg verður með Pop Up viðburð
• Íþróttafélögin sjá um veitingasölu og afþreyingu
• Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir íbúa og gesti í gegnum upplifunina með stuttum hljóðupptökum þar sem hann miðlar fróðleik og innsýn um almyrkvann.
Við hvetjum alla til að:
• Kynna sér staðsetningarnar og velja þann stað sem hentar best.
• Ganga eða hjóla á viðburðarstað ef mögulegt er.
• Taka með teppi, útilegustóla og koma sér vel fyrir.
• Muna eftir viðurkenndum sólmyrkvagleraugum.