Visit Reykjanesbær

Nýdönsk

Nýdönsk

Nýdönsk

193 193 people viewed this event.

Nýdönsk fagnar 40 ára afmæli á þessu ári og heimsækir Hljómahöllina af því tilefni. Skemmst er að minnast frábærra tónleika í húsinu í fyrra þar sem færri komust að en vildu.

Á síðasta ári kom út plata þeirra, Í raunheimum, sem inniheldur meðal annars stórsmellinn Fullkomið farartæki. Fáar ef nokkrar íslenskar hljómsveitir eiga jafn marga smelli og Nýdönsk og víst er að von er á góðu þegar piltarnir heimsækja Reykjanesbæ.

Hljómsveitina skipa þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða Guðmundur Pétursson, gítarleikari og Ingi Skúlason, bassaleikari.

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/42/nydonsk →

 

Dagsetning og tími

27-02-2027 @ 08:00 e.h. til
27-02-2027 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum