Visit Reykjanesbær

Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

203 203 people viewed this event.

Jólabjöllurnar snúa aftur og í þetta sinn með splunkunýja
tegund af erótík!

Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar
landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika
sunnudaginn 29. nóvember kl. 19:30 í Hljómahöll í Reykjanesbæ.

Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum
sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt
líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt ef
nokkuð er heilagt.

Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum
og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið
fyrir þau sem eiga allt.

Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að
tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.

Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum –
við lofum að að jólin verða aldrei söm aftur. 🔔✨

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/48/splunkuny-tegund-af-erotik-med-jolabjollunum →

 

Dagsetning og tími

29-11-2026 @ 07:30 e.h. til
29-11-2026 @ 10:00 e.h.
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum