Visit Reykjanesbær

Thurston Moore Group í Hljómahöll

Registrations have closed.
Thurston Moore Group í Hljómahöll

Thurston Moore Group í Hljómahöll

258 258 people viewed this event.

Thurston Moore og hljómsveit halda tónleika í Hljómahöll sunnudaginn 9. október næstkomandi. Húsið opnar kl. 19:00, upphitun hefst kl. 20:00 og Thurston Moore stígur á svið kl. 21:00. Miðasala hefst fimmtudaginn 1. september kl. 11 á tix.is. Sætaferðir verða frá Reykjavík á tónleikana og er miðasala í rúturnar einnig á tix.is.

Það verður að teljast sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur að Thurston Moore og hljómsveit séu á leiðinni til Íslands. Thurston stofnaði hljómsveitina Sonic Youth árið 1981 ásamt Kim Gordon en sveitin er ein af áhrifamestu hljómsveitum síðast liðinna 40 ára. Tilraunir Sonic Youth með riff og gítarstillingar í bland við dásamlega samsettar laglínur breyttu um margt landslaginu á jaðrinum í tónlistinni og ruddi brautina fyrir hljómsveitir eins og Nirvana og My Bloody Valentine. Eftir að Sonic Youth lagði upp laupana árið 2011 (hugsanlega tímabundið) hefur Thurston haldið áfram með sólóferil sem hófst árið 1995 með útgáfu Psychic Hearts. Hann hefur gefið út samtals sjö sólóplötur auk þess sem hann hefur gefið út fjölda hljómplatna sem meðlimur ýmissa hljómsveita og verkefna.

Thurston gaf út plötuna By The Fire árið 2020 sem fékk góða dóma og inniheldur m.a. lögin Hashish, Cantaloupe og Breath en þau eru með allra bestu lögum Thurston á sólóferlinum. Hann gaf síðan út instrumental plötuna Screen Time árið 2021 sem sver sig í ætt við bestu tilraunaplötur Sonic Youth.

Í hljómsveitinni eru ásamt Thurston Moore þau Debbie Googe á bassa sem er jafnframt bassaleikari My Bloody Valentine, James Sedwards á gítar sem er þekktastur fyrir að leiða hljómsveitina Nøught og síðast en ekki síst Steve Shelley sem spilar á trommur en hann starfaði með Thurston í Sonic Youth.

Tónleikarnir fara fram í hinum frábæra tónleikasal Stapa í Hljómahöll.

Auka upplýsingar

 

Dagsetning og tími

09-10-2022 @ 20:00 to
09-10-2022
 

Staðsetning

 

Flokkur Atburðar

 
Watch video
 

Deila