Visit Reykjanesbær

VOR Á VATNSNESI – 40 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ HÓTEL KEFLAVÍK

VOR Á VATNSNESI – 40 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ HÓTEL KEFLAVÍK

VOR Á VATNSNESI – 40 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ HÓTEL KEFLAVÍK

127 127 people viewed this event.

Í tilefni 40 ára afmælis Hótel Keflavíkur þann 17. maí bjóðum við bæjarbúa og gesti hjartanlega velkomna á glæsilega afmælishátíð dagana 15.–17. maí.
Sjá nánari dagskrá á www.kef.is/40
Framundan er lífleg og fjölbreytt helgi þar sem skemmtihlaup, list, tónlist og einstakar upplifanir mætast í skemmtilegri stemningu fyrir alla fjölskylduna.
Vor á Vatnsnesi er nýr árlegur viðburður í Reykjanesbæ – notaleg bæjarhátíð sem við ætlum að byggja upp til framtíðar. Í ár gerum við þó sérstaklega vel við okkur og fögnum 40 ára afmælinu okkar með enn veglegri dagskrá. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og höfum gaman saman!
Það er frítt inn fyrir alla – Verið velkomin á Vatnsnes.

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar
DAGSKRÁ

Afmælistilboð sem gilda út allan maí á KEF
• Nýr matseðill kynntur á KEF Restaurant
• Þriggja rétta afmælismatseðill á KEF Restaurant
• Afmælisborgarinn á KEF Restaurant
• Afmæliskokteilar á Diamond bar þ.á.m. 1986 og Steini on the rocks
• Tilboð á gjafabréfum í KEF SHOP. Nánar auglýst síðar.

Laugardagur 16. maí

10:00 – 17:00
• Vatnsnes opið gestum
• Stemning við Vatnsnes. Útibar og Gullvagninn við Vatnsnes

10:00
• Upphitun og skemmtilegheit og skráning í KEF Moët Kampavínshlaup

11:00
• KEF Moët Kampavínshlaup – 5 km Skráning á www.kef.is/40

12:15
• KEF Kampavínsspretthlaup – 40 metrar Skráning óþörf bara mæta og spretta!

12:30
• Danspartý eða Après Run Rave með DJ á útisviðinu. Allir velkomnir!

13:00
• Verðlaunaafhending KEF Moet Kampavínhlaupsins.

14:00 – 17:00
• Hoppukastalar við Vatnsnes frítt fyrir alla og götubiti frá Dons Donuts

14:00
• Leiksýning fyrir börn frá Leikhópnum Lotta á útisviðinu við Vatnsnes. Frítt fyrir alla

15:00
• Lúðrasveit Reykjanesbæjar spilar nokkur lög fyrir gesti og gangandi á útisviði Vatnsnes

17:00 – 19:00
• Vínsmökkun á Diamond Lounge í boði Mekka

20:30 – 22:40
• Tónlistarhátíð Vor á Vatnsnesi! Ferðalag aftur til gullaldar íslenskrar tónlistar með Óðmönnum, Hljómum, Magnúsi og Jóhanni, Ellý og Vilhjálmi, Valdimar og Ásgeiri. Frítt inn. Sjá nánar á www.kef.is/40

22:40
• Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitar Suðurnesja

23:00
• Lok dagskrár

Aðrar upplýsingar

Til þess að skrá þig á þennan atburð vinsamlegast farðu á eftirfarandi slóð: http://www.kef.is/40 →

 

Dagsetning og tími

16-05-2026 @ 10:00 f.h. til
16-05-2026 @ 11:00 e.h.
 

Flokkur Atburðar

Deildu viðburðinum