Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar
Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ verður haldin 3. – 9. október nk.
Markmiðið með heilsu- og forvarnarviku er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa. Fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem almenningur er hvattur til að kynna sér.
